Sýningin sem ég var með í Energia hefur verið færð á hárgreiðslustofuna Hair doo, Dalvegi 18 í Kópavogi.
Þetta eru 9 litlar myndir og 9 stórar myndir. Stóru myndirnar eru allar svart/hvítar en hinar eru litaglaðar afrikugrímur. Allar myndirnar eru úr íslenskri ull .Þær eru gerðar með blandaðri tækni og sumar þeirra eru í þrívídd.
Námskeið
Ég býð upp á námskeið hvar sem er á landinu. Hafið samband í 896-5351 eða maggahannar@gmail.com.
Maggahannar á Facebook
Ég er einnig á Facebook, eins og flestir íslendingar. Þar má finna myndir af verkum og einnig upplýsingar um mig.